föstudagur, júní 28, 2013

Kanada og Norður-Ameríka 2013

Ég ákvað að endurvekja bloggið mitt frá menntaskólaárunum til þess að blogga um ferðalag mitt í Kanada og Norður-Ameríku þetta sumarið. Bloggið er ætlað ættingjum mínum og vinum og ekki síst sjálfri mér til þess að halda til haga upplifunum mínum og ævintýrum þarna úti. Ég fer með prógrammi sem heitir Snorri West. Fyrir áhugasama er hægt að lesa betur um það hér. Ég fer með þremur öðrum stelpum sem heita Hulda, Svandís og Þorbjörg svo þetta verður sannkölluð stelpuferð. Í dag eru ellefu dagar í brottför svo það fer heldur betur að styttast í ferðina. Ég hef ekki haft mikinn tíma til að hlakka til, þar sem það hefur verið svo mikið að gera, en ég áttaði mig á því í dag að ég verð farin út áður en ég veit af.

Í dag var ég á fundi með Ástu Sól, Gail og stelpunum og fékk hver og ein okkar voða flotta möppu með fullt af upplýsingum. Það hefur verið rosa vel að öllu staðið varðandi prógrammið alveg frá upphafi. Í júnímánuði fór ég á ýmsa viðburði tengdu því og hitti ég meðal annars ungmenni frá Kanada og Bandaríkjunum sem eru hér á landi í sex vikur í svipuðu prógrammi. Þau eiga ættingja hér á landi og dvelja hjá þeim ásamt því að ferðast um landið. Veðrið hér hefur því miður ekki verið sem best í sumar og vona ég að það fari að lagast þeirra vegna og allra annarra. Ég hlakka voða til að komast í sólina í Kanada og USA.

Við fljúgum fyrst til Toronto og munum svo ferðast víða um Kanada ásamt því að eyða einum degi í North-Dakota. Þar tökum við þátt í sumarbúðum og fræðum börnin eitthvað um íslensk jól. Í Kanada tökum við einnig þátt í einhverjum sjálboðastörfum. Ég mun blogga meira um þetta allt þegar að því kemur.

Ég ætla reyna að blogga reglulega svo hægt sé að fylgjast með en lofa þó engu. Núna ætla ég að fara lesa upplýsingarnar sem ég fékk í dag.