föstudagur, apríl 14, 2006

HM...

Já, kæru gestir síðu minnar. Hún Drífa bað mig um að hripa eitthvað niður, enda langt síðan gott lesefni barst...ehe!!!

Ég er í páskafríi, já eins og svo margir aðrir og hefur það tjaa.....verið svosem allt í lagi. Fínt að fá aðeins frí úr skólanum og koma hress aftur. Flestir komnir með einhvern skólaleiða.

Svo verð ég bara að koma því að bara fyrir hana Drífu, sem er held ég pínulítið, já bara pínulítið öfundsjúk að ég er að fara til Berlínar í sumar. Ég hlakka alveg óendanlega mikið til þar sem ég get spreytt mig á allri minni þýskukunnáttu, sem er sko mikil, ég held bara nánast stundum að ég sé Þjóðverji. Og svo er náttúrulega HM í sumar í Þýskalandi......vúhúúúú.

Svo að öðru ég var að eignast litla frænku í dag...það streyma bara inn endalaust af skemmtilegum fréttum. Hún fæddist samt í Danmörku og er hálf dönsk. Skrítið að hugsa til þess að hún eigi eftir að verða helmingi betri en ég í dönsku. En hlakka mikið til að sjá hana.
___________________________

En já, Drífa nóg? Nei hélt ekki...

Smá af henni Drífu. Hún er búin að vinna eins og ég veit ekki hvað. Alltaf vinnandi, annaðhvort Golfskálinn, passa, Golfkálinn, passa, Golfskálinn, passa. Hún er samt hress stelpan.
Annars biður hún að heilsa almúganum...ehe.

Jæja, núna nenni ég þessu ekki lengur.... ég ætla að enda þetta með mynd af nýja og flotta bílnum mínum...




Gerður

laugardagur, mars 25, 2006

Sæl og blessuð...

Jæja, kominn tími til eftir langa fjarveru. Ég nenni varla að halda þessari síðu uppi, ekki það að ég sé eitthvað löt, ég einfaldlega nenni því bara ekki. En hvað um það, ætla að ''steypa'' eitthvað fyrir þig lesandi góður.

Ég er dottinn inn í alveg frábæra þætti, Prison Break. Þorvaldur var svo góður að gefa mér fyrstu tólf þættina og hef ég algjörlega fests í þeim. Þetta eru þrusugóðir þættir. ''Farð að horfa maður.'' ;)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
Fór í Austurbæjarbíó áðan, þar sem úrslitin úr kosningunum í skólanum voru tilkynnt. Og alveg er ég búin að komast að því að það er í góðu lagi að mæta hálftíma til klukkutíma á seint á einhverja svona atburði sem MR heldur. Það var þvílík seinkun á dagskránni eins og vanalega. En það var í góðu lagi, þó svo að ég sé ekki sú þolinmæðasta.
Doddi var kosinn Inspector Scholae, ég hafði sterkan grun um að hann myndi vinna og Svanhvít var kosin forseti Framtíðarinnar og sömu sögu má segja þar um mína sterku dómgreind.
Mér fannst samt frekar leiðinlegt að Þorvaldur skuli ekki vera kosin skólaráðsfulltrúi. Hann er búin að standa sig svo vel í þessu embætti í ár. Skamm, skamm krakkar. Nei, segi svona, svona er þetta bara. Ömurlegt.

Ég og Rakel fórum síðan á einhvern pizzastað eftir úrslitin, en hittum síðan krakkana á öðrum pizzastað stuttu síðar, misstum nefninlega af þeim í millitíðinni.
Það var frekar fyndið að á síðari pizzastaðnum :) hittum ég og Rakel hana Hjördísi Halldóru sem hafði verið leiðbeinandinn okkar í unglingavinnunni í 9. bekk. Hún mundi eftir okkur enda er ekki hægt að gleyma okkur Rakel.


Já... tja býst ekki við að það sé gaman fyrir ykkur að lesa þetta en mér gæti ekki verið meira sama......

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
Pabbi átti afmæli í gær, og ætlaði ég að vera svo góð dóttir og gefa honum einhverja gjöf. Skundaði í Kringluna eftir skóla, en viti menn ég hefði betur getað sleppt því að fara því að ég eyddi tæplega 17.000 kalli í föt fyrir sjálfa mig. Búhúú ég verð að fara að fá mér vinnu. Keypti samt kaffi og eitthvað í kaffibúðinni handa ''gamla manninum.''


Farin að horfa á Prison Break.

OG þá hefur yðar tign ekkert fleira að deila með almúganum í bili.

mánudagur, janúar 16, 2006

HAHAHA.....



1970 Davíð Oddson tekur við af Geir H.Haarde inspector í Menntaskólanum í Reykjavík.

...rakst á þessa skemmtilegu mynd á netinu áðan.