fimmtudagur, október 27, 2005

Mól

Mól er fyrirbæri sem mér líkar hreint ekki vel við. Satt best að segja myndi ég segja efnafræðin öll. Hún er ekki mín sterkasta hlið. Endalaus efni, formúlur og bla bla. Getur samt verið ágæt á köflum. Var semsagt í efnafræðiprófi í morgun og gekk ekki nógu vel. Sem er fúlt, því ég fékk alveg ágætiseinkunn á fyrra prófinu sem ég tók.

Ætla að fara að gera eitthvað að viti svo ég kveð.
- Gerður

mánudagur, október 24, 2005

sunnudagur, október 23, 2005

Arrgggg....

Arrg ég er svo pirruð út í allt og alla. Langar að leggjast í þunglyndi. Liggur við. Það er svo endalaust mikið að gera. Nenni ekki neinu. Er búin að sitja við tölvuna í næstum allan dag að gera einhvern asnalegan fyrirlestur.

Nýti tímann ekki alveg nógu vel, þar sem ég er mest allan tímann búin að vera að vafra á veraldarvefnum og hanga á msn. Hvílíkir tímaþjófar...piff

En nóg um það - er farin út að drekkja sorgum mínum...

-Gerður

föstudagur, október 14, 2005

Árshátíðin

Eins og flestir vita var árshátíð á vegum skólafélagsins, MR í gær. Byrjaði dagurinn á að vakna klukkan átta, já átta og skella sér í klifurhúsið þar sem bekkurinn ætlaði að hittast. Frekar erfitt að finna þann stað. Svo lá leiðin í sund, nánar tiltekið Laugardalslaugina að fá smá hita í kroppinn. Fórum við í körfubolta þar sem ég held að strákarnir hafi unnið. Næsti viðkomustaður var bakaríið og heim til einnar bekkjarsystur.

Um klukkan fimm mættu síðan allir á Broadway í sínu fínasta pússi á matinn. Þorsteinn Guðmundsson var kynnir og stóð hann sig með eindæmum vel, að mínu mati. Ágætismatur alveg hreint, lambakjöt með öllu tilheyrandi og einhver ís eða eitthvað.

Svo var farið í fyrirpartíið í Garðabæinn til Perlu, risa hús alveg hreint með billiard-borði og var mikið spilað á því, keppti tvisvar og sá að ég á ekki billiard fyir mér í framtíðinni. Þarf að fara á eitthvað námskeið til að læra að skjóta. Margir fullir, en já gaman þar.

Um ellefu var farið í rútu á Broadway á ballið. Milljónamæringarnir héldu uppi stuðinu, ágætir alveg hreint og var mikið dansað. Ballið var búið um eitt og var þá tekið leigara upp í Grafarvoginn. Beint upp í rúm að sofa eftir annasaman dag.

-Þakka fyrir daginn og kvöldið
En þangað til næst
Virðingarfyllst
Gerður Gautsdóttir