Eins og flestir vita var árshátíð á vegum skólafélagsins, MR í gær. Byrjaði dagurinn á að vakna klukkan átta, já átta og skella sér í klifurhúsið þar sem bekkurinn ætlaði að hittast. Frekar erfitt að finna þann stað. Svo lá leiðin í sund, nánar tiltekið Laugardalslaugina að fá smá hita í kroppinn. Fórum við í körfubolta þar sem ég held að strákarnir hafi unnið. Næsti viðkomustaður var bakaríið og heim til einnar bekkjarsystur.
Um klukkan fimm mættu síðan allir á Broadway í sínu fínasta pússi á matinn. Þorsteinn Guðmundsson var kynnir og stóð hann sig með eindæmum vel, að mínu mati. Ágætismatur alveg hreint, lambakjöt með öllu tilheyrandi og einhver ís eða eitthvað.
Svo var farið í fyrirpartíið í Garðabæinn til Perlu, risa hús alveg hreint með billiard-borði og var mikið spilað á því, keppti tvisvar og sá að ég á ekki billiard fyir mér í framtíðinni. Þarf að fara á eitthvað námskeið til að læra að skjóta. Margir fullir, en já gaman þar.
Um ellefu var farið í rútu á Broadway á ballið. Milljónamæringarnir héldu uppi stuðinu, ágætir alveg hreint og var mikið dansað. Ballið var búið um eitt og var þá tekið leigara upp í Grafarvoginn. Beint upp í rúm að sofa eftir annasaman dag.
-Þakka fyrir daginn og kvöldið
En þangað til næst
Virðingarfyllst
Gerður Gautsdóttir